Mín skoðun á hlutunum...
29.08.2010 20:06:28 / popzy

Spurning að taka upp "pennann" aftur???

Jæja nú jæja! :)

Ansi margt búið að gerast síðan ég skrifaði síðast en ég held að ég ætli að notast smá við bloggið til að skrifa mig út úr ákveðnum upplifunum.. ;) Já það er margt búið að vera í gangi og hefur tekið ansi mikinn toll af andlegu hliðinni! Ég held að ég hafi bara sjaldan verið svona leið og liggur barasta við neikvæð, sem er ekki beint svona minn tebolli.. haha! :haha:
Það er búið að vera erfitt að kyngja þeim bita að vera dæmd, þótt það sé einungis tímabundið, öryrki.. Ég hefði ekki trúað því að þetta myndi reynast mér svona erfitt?? :$ en það var náttúrulega ekki beint planið að eyða 6 árum í háskólanám og fara svo að sækja um örorkubætur! :s Ég sé það samt í dag að þetta er allt partur af planinu, þar sem að ýmislegt gæti verið í deiglunni og þá mun það að hafa verið öryrki hjálpa mér MIKIÐ! :lol: ég ætla því bara að líta björtum augum á það.. ;) Ég er samt búin að gera allt sem ég mögulega get og hef látið reyna á eins og til dæmis mastersnám í Blaða- og fréttamennsku (sem nánast gekk af mér dauðri..)! En áfram held ég að leggja mig alla fram! ;)

Fyrr á þessu ári var hins vegar búið að ákveða að fjarlægja úr mér annan eggjastokkinn.. En vegna einhvers misskilnings um aðgerðardag, þá endaði ég heima hjá hetjunni minni, henni Kristínu í þvílíku verkjakasti og gjörsamlega ráðalaus.. (Ég var búin að bíða ansi kvalin í marga daga eftir að komast í aðgerðina og var orðin gjörsamlega búin á því)! Hún endaði hins vegar á að hringja á sjúkrabíl og var ég flutt niðrá bráðamóttöku og í beinu framhaldi lögð inná Kvennadeildina. Þarna var hetjan mín, sjálf mjög lasin og dáist ég enn að því hvað hún hélt út með mér þarna niðrá spítala!!! ;* fæ henni aldrei nógsamlega þakkað!!! Þar tók annar læknir við mér af honum Óla mínum, sem heitir Jens og er búinn að sjá um mig síðan. Við erum svona að þreifa okkur áfram og að kynnast hvort öðru. Þetta er búið að vera svolítið skrítið, skal viðurkenna það haha.. Jens er hins vegar fínn læknir, en ég var náttúrulega búin að vera hjá Óla mínum síðan ég var 17 ára, þannig að þetta var smá stökk. Eftir sumarið, sem var ansi mikið upp og niður, verkjalega séð þá vorum við í rauninni kominn inn á það aftur að rífa úr mér eggjastokkinn... :$ ég var komin það langt niður og fannst mér ég eiga orðið það lítið líf, að ég var í rauninni tilbúin að gera hvað sem er:!::!: Örlögin vilja hins vegar greinilega eitthvað allt annað en að það sé rifin úr mér eggjastokkurinn.. haha! :lol: Nema þetta sé eitthvað svona allt er þegar þrennt er dæmi??? Allavega.. núna á mánudaginn var ég svo lögð inn á sjúkrahúsið hérna í Eyjum í frekar miklu verkjakasti! Það gekk frekar illa að ná tökum á því og á fimmtudagsmorgunin var farið í það að rannsaka mig enn betur.. teknar nýjar blóðprufur, þvag, blóðsykur og fleira skemmtilegt.. Eftir nánari athugun kom í ljós að það var blóð í þvaginu hjá mér og ekki var um neina "Rósu frænku" í heimsókn hjá mér!! haha! :haha: Þetta varð til þess að ég var send í tölvusneiðmyndatækið niðri þar sem hún yndislega Ágústa Dröfn tók á móti mér og myndaði mig í bak og fyrir! ;) í ljós komu steinar í báðum nýrum.. þetta var svo allt sent suður til sérfræðinga og í ljós kom að ég var með allavega 6 kalk massa í sitthvoru nýranu... jess surreí bob, allavega um 12 nýrnasteina að ræða, hvorki meira né minna.. Það var náttúrulega alveg til að toppa andlegu líðanina og til að auka á sjálfsefann sem að á það til að koma og fara! :(

Undir venjulegum kringumstæðum þegar ég er í nýrnasteinakasti, þá er ég ælandi af kvölum og svitna óheyrilega og jaaaa þetta er svona nokkurn veginn jafn kvalarfullt og það sem ég hef upplifað í sambandi við móðurlífið.. :cry: en í þetta skiptið var ekkert svoleiðis í gangi og því miklar líkur á að einhver salli eða sandur (sem sagt úr nýrnasteinunum sé að skila sér niður og valda mér kvölum) :s jafnframt held ég í alvöru að ég sé orðin vön þessu??? Ég meina, getur það hreinlega verið!?! Því að þegar við skoðuðum myndirnar, þá sást eitthvað mjög greinilega hægra megin en erfiðara var að greina eitthvað vinstra megin.. OG MÉR ER EKKI EINU SINNI ILLT HÆGRA MEGIN!!! HALLÓ???? 8| Það sem nú tekur við er að bíða eftir að komast að hjá þvagfærasérfræðing/skurðlækni eða þeim sem er yfir nýrnabrjótnum (veit ekki hvort að þetta er einn og sami maðurinn, en tel það líklegt..) Það er búið að setja móðurlífsdæmið alveg á hold eins og er!! :$ Núna verður bara tekið fyrir eitt mál í einu og þarf ég því virkilega að taka hugtakið "einn dag í einu" up to a hole new level!! haha.. þar sem að læknakerfið á Íslandi er ekki beint það hraðvirkasta.. Það fylgdi ekki með lýsingunum á steinunum hversu stórir þær væru, þannig að ég hef ekki einu sinni hugmynd um hvort að ég sé kandídat í steinabrjótinn eða hvað... Þannig að jebb, nú tekur við þokkaleg bið! :$

Ég sat hjá lækninum mínum hérna heima á föstudaginn og tárin einhvern veginn bara runnu niður kinnarnar... ég vissi ekki almennilega hvað mér átti að finnast, hvernig mér leið og veit það í rauninni ekki enn.. :s Ég skal láta ykkur vita þegar ég kemst að niðurstöðu hahaha! :haha:

Úff, allavega búin að blása smá frá mér og er ekki frá því að mér líði örlítið betur í hjartanu.. ;) Ef það er EINHVER sem er að læðast hingað inn ennþá og lesa, þá þætti mér afar vænt um ef sá hinn sami myndi kvitta (hvort sem þú þekkir mig eitthvað, eða alls ekki neitt)! haha! :) Vonandi eruð þið búin að eiga dásemdarhelgi!!!

Knús og kossar á línuna! ;*
Lag dagsins: Pass out - Tinie Tempah! Tileinkað honum Agnari mínum hí hí :lol:


» 0 hafa sagt sína skoðun

30.10.2009 21:55:20 / popzy

Ný síða með pistlunum mínum.. ;)

Halló yndislega fólk sem ennþá skríðið hér inn! :haha:

Eftir að fésbókin varð hluti af lífi manns þá er maður alveg hættur að blogga!! ;)
Vildi samt bara láta ykkur vita að þar sem ég átti í erfiðleikum með að setja alla pistlana mína inn hérna.. þá útbjó ég nýja síðu með pistlunum mínum á meðan ég var úti í Esbjerg hjá krúttunum mínum þeim Gunnari Heiðari, Bjarný og ofurkrúttinu honum Gabríel Snæ!!!! :lol:
nýja slóðin er www.bubsy.bloggar.is

Knús og kossar til ykkar! ;* Eigið yndislega helgi!

Lag dagsins: Silence sigh - Badly drown boy!


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.04.2009 18:12:29 / popzy

Bjart framundan! :)

Halló halló! :)

Ákvað að henda inn eins og einu bloggi... Er með svo góða tilfinningu fyrir hlutunum þessa dagana og held hreinlega að ævintýrin eigi eftir að elta mig uppi í sumar hvort sem mér líki það betur eða verr ha ha ha! ;)
Kannski við hæfi að byrja á að þakka kærlega fyrir allar afmæliskveðjurnar!!! Vá!!! Ég hætti held ég að telja á fésbókinni þegar þær voru komnar í 300... hí hí! :haha: fékk svo líka bara yndisleg símtöl og dagurinn bara hinn fínasti. Svo verð ég að sjálfsögðu að þakka öllu yndislega fólkinu hérna á eyjunni fögru og líka öðrum sem komu og styrktu Ægi, íþróttafélag fatlaðra í gær!!!! :d Það var með ólíkindum hvað þetta gekk allt saman vel og hvað við fengum góð viðbrögð. Við vorum með kökubasar, flóamarkað og pennasölu og gekk þetta eins og í sögu!!! :) Ég var svo lánsöm að mínar yndislegu vinkonur Betsý og Fríða Hrönn sáu um að baka fyrir mig... Takk ENDALAUST MIKIÐ fyrir það! Þið gjörsamlega björguðuð mér!!! ;* Svo var bara frábært að fá alla þessa aðstoð frá foreldrum og fólkinu í kringum okkur! Við erum svo lánsöm!
Ég fékk mjög skemmtilegt símtal á sumardaginn fyrsta, ákveðið tilboð í gangi sem mér fannst hljóma ógurlega spennandi!! Fæ að vita meira um þetta væntanlega á morgun. Það er svo mikið þannig að þegar ein hurð lokast þá opnast gluggi eða aðrar dyr fyrir okkur! Mér líður þannig þessa dagana! ;) Það verður spennandi að fá að vita meira... Ég býð allavega spennt eftir símtali á morgun!! :D Æ svo er sumarið bara eitthvað svo spennandi!!! :) Bjarný og Gunnar Heiðar að fara að gifta sig og þar munum við Trausti sjá um að stjórna veislunni.. Mikill heiður þar á ferð að mínu mati! Takk elskurnar mínar! ;* Svo fer ég í brúðkaup helgina þar á eftir til frænku minnar, sem er hálfpartin eins og systir mín, sem sagt mikið stuð og mikið gaman!!! ha ha ha :lol: Svo er bara útlit fyrir að ég fái yndislega gesti til mín í heimsókn í sumar, þannig að ég er eitthvað svo full tilhlökkunar!!! ;) Mörgum sem langar að koma í heimsókn, þannig að núna fer mín sko í það að raða niður ha ha ha... :haha:
Að öllu óbreyttu mun svo Kristín ofurhetjan mín halda uppá afmælið sitt á meðan ég er í bænum og get ég varla beðið! Sömu helgi mun Íþróttasamband fatlaðra halda Sambandsþingið sitt og mun ég því gista á Radison SAS hótelinu af því tilefni, vúhú!!!! :) bara snilldin ein! Jább, þannig að... ég segi bara að það sé ansi bjart framundan!

Læt þetta duga í bili krúttin mín sem ennþá slæðist hérna inn! ;)

Lag dagsins: The garden - Mirah (var dansað við þetta lag í So you think you can dance, elska lagið OG ELSKA dansinn við það, bara geðveikt!!!) :)



» 1 hafa sagt sína skoðun

09.01.2009 13:53:27 / popzy

Bloggpása!!!

Er ekki alveg að nenna þessu bloggdæmi þessa dagana... :) andinn eitthvað lítið yfir mér og svo finnst mér ég knúin til að hrósa ykkur fyrir mikla kvittsýki í þau skipti sem ég blogga ha ha ha!!!! :haha: *hóstakast*
Þið fáið klárlega fréttir ef eitthvað agalega merkilegt gerist! Annars þakka ég ykkur sem kíkið ennþá hérna inn fyrir lesturinn! ;)

Knús og kossar, ykkar Kristín Ósk ;*

P.s bætti smá við í sagan mín - framhald! ;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

24.12.2008 01:27:38 / popzy

jóla jóla jóla... :o)

Halló yndislega fólk! :) langaði bara að senda ykkur (sem ennþá kíkið hingað inn) smá jólakveðju, finnst  hún SVO MIKIÐ falleg! ;)

Hamingjan gefi þér gleðileg jól,
gleðji og verndi þig miðsvetrarsól,
brosi þér himininn heiður og blár
og hlýlegt þér verði hið komandi ár.

Jólakveðja, kossar og knús, ykkar Kristín Ósk ;o*


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.12.2008 21:31:48 / popzy

Spurning að koma með smá fréttir..

Jæja nú jæja! :) Kannski kominn tími á að segja frá einhverju sniðugu og ekki sniðugu! ;) bara bæði betra...
  • Byrjum á London baby - GEÐVEIK FERÐ frá upphafi til enda! Jaaa ok nema í blálokin þegar myndavélinni minni var stolið úr leigubílnum eða dottið úr veskinu mínu í flugvélinni á leiðinni heim! :cry: Ég og pabbi tókum samt ákvörðun um að gráta þetta ekkert alltof mikið... þetta sé einfaldlega tilefni fyrir aðra ferð til að taka fleiri myndir ha ha ha... ;) Ferðin var ógleymanleg!! Arsenal vann Everton 3-1 sigur og skoraði "tengdasonurinn" eins og pabbi kýs að kalla hann, Theo Walcott, eitt mark til að þakka okkur fyrir að mæta hí hí hí.. :d Við vorum á Club level og fengum því 3ja rétta máltíð fyrir leikinn, frítt að drekka í hálfleik og gátum fengið okkur sæti og beðið á meðan mesta þvagann yfirgaf leikvanginn! Bara snilld! :haha: Við gerðum svo sem lítið annað en að ferðast á föstudeginum. Laugardagurinn fór að mestu í leikinn, ferðalög fram og tilbaka með Túbinu, já og notabene.. lögreglufylgd í lestina útaf fótboltabullum! Þetta var alveg alvöru eins og maður sér í bíómyndunum!!!! :lol: Sunnudagurinn var rölt dagurinn mikli, við eyddum 6 tímum í að labba um London.. með smá stoppum við og við, þetta var æðisgengið!! Fengum þvílíkan dýrindis indverskan mat í kvöldmat það kvöldið svona til að toppa daginn! :) Mánudagurinn var líka vel nýttur! Fórum í China townið og fengum okkur kínverskan mat og spókuðum okkur um áður en við myndum fljúga heim! Ég og pabbi ELSKUM sko að borða góðan mat og olli London okkur alls ekki vonbrigðum á neinn hátt! Eða jú... kannski hvað pundið var hátt ha ha ! ;) Keyptum okkur nokkra geisladiska og búið!
  • Íbúðarmálin ganga nokkuð vel, allavega núna! Nýjustu fréttir herma að skápahöldurnar á svefnherbergisskápana séu á leiðinni.. við erum hálfnuð með að flísaleggja ganginn og svo ef lán og lukkan segja til um, þá ætti ég að fá 3 stykki húsgögn á næstunni sem þarf að skrúfa saman! ;) Annars er orðið HRIKALEGA kósý hérna! Búin að fá sófa í stofuna sem hægt er að búa í... ef einhverjum langar að gerast þjónn heima hjá mér, endilega hafi sá hinn sami samband! Þarf að hafa smá handafl til að bera mig á milli mjúka rúmsins míns yfir í mjúka sófann minn... hí hí hí.. :haha: Svefnherbergið mitt er TRUFLAÐ það er svo flott! Enda er hún María Ýr vinkona mín smekkmanneskja með eindæmum og hefur séð um að hanna það nánast frá grunni! Þvílíkur snillingur þessi stelpa! Svo eru öll jólaljósin komin upp + jólaskrautið.. Og ég er búin að pakka inn öllum jólagjöfunum! Þannig að núna eru það nokkur stykki jólakort eftir og þá er ég tilbúin í jólahátíðina miklu! ;) 
  • Námskeiðið Sætar stelpur gekk rosa vel og var ég ekkert smá ánægð með skvísurnar mínar!!! :haha: finnst hálfpartin vanta eitthvað í miðvikudagana mína eins og staðan er í dag! ;)
  • Heilsan er svona bara b... Endaði inná spítala í síðustu viku í 2 nætur, alveg búin á því... :s svo kemur eiginlega restin bara í ljós núna á næstu dögum! Þarf jafnvel að fara í bæinn til Óla doksa... er bara ekki beint með heilsu í það akkúrat núna! :$ Held að þetta séu blöðrur.. og ef ekki þá þarf jafnvel að kippa mér í enn eina aðgerð... Kemur allt í ljós!
  • Ætla annars að láta þetta duga í bili, fréttaskot síðustu vikna komið inn.. Og nú HEIMTA ÉG KVITT, takk fyrir takk! :lol:


» 3 hafa sagt sína skoðun

05.11.2008 13:45:08 / popzy

Skyndibitar fyrir sálina

Jákvæð og neikvæð hugsun />

Komið þið sæl kæru lesendur! Ég ákvað að deila með ykkur þessum frábæra texta úr bókinni Þú ert það sem þú hugsar eftir Guðjón Bergmann. Ég var að lesa þetta núna á sunnudaginn og fannst ég knúin að bera þennan boðskap áfram. />

Marta Washington, eiginkona George Washington komst svo að orði: „Ég er ákveðin í að vera jákvæð og hamingjusöm, hverjar sem aðstæðurnar eru, því ég hef lært af eigin reynslu að stór hluti af hamingju okkar og að sama skapi vansæld byggist á viðhorfi á okkar en ekki kringumstæðum“. />

Guðjón Bergmann vinnur út frá eftirfarandi skilgreiningu á jákvæðni í þessari bók. Hann tekur sérstaklega fram að líkt og með allar skilgreiningar sé hér á ferðinni ákveðin vísbending en ekki endanleg niðurstaða. „JÁKVÆÐNI; er að hugsa um lausnir, möguleika, tækifæri, markmið og drauma“. Ég er mjög sammála þessari skilgreiningu hjá honum. Sérstaklega hlutanum að hugsa í lausnum. Ég fór á námskeið hjá Kára Eyþórssyni haustið 2006, sem fjallaði í stuttu máli um að vekja snillinginn í sjálfum sér og að hugsa í lausnum (ef þið hafið áhuga, sjá nánar www.ckari.com). Þessi lausnamiðaða hugsun hefur komið mér mjög langt, þá sérstaklega þegar kemur að veikindunum mínum. Var því kærkomið að fá þessa upprifjun við lesturinn á bókinni. />

„Þeir sem eru jákvæðir hugsa einfaldlega meira um lausnir en þeir hugsa um vandamál, möguleika í stað þess að hugsa stöðugt um fyrirstöður, tækifæri í stað erfiðleika og þeir beina athygli sinni að draumum sínum og markmiðum. Jákvæð manneskja byrjar alltaf að leita lausna eftir að hún hefur skilgreint fyrirliggjandi vandamál (verkefni). Jákvæð manneskja gerir sitt besta til að finna möguleika og betri tækifæri. Jákvæð manneskja þarf ekki alltaf að vera brosandi, segjandi brandara eða horfa framhjá því neikvæða. Hún getur jafnvel verið pirruð og reið, en strax og hún byrjar að hugsa um lausnir og tækifæri þá er hún orðin jákvæð. Jákvæðni felst ekki í því að halda að lífið sé auðvelt, heldur að njóta lífsins þrátt fyrir erfiðleika, takast á við áskoranir uppfullur af von og sjá möguleika þar sem aðrir sjá enga. Maður verður að geta séð tækifærin þegar á móti blæs“. />

Lífið getur verið erfitt, en það þýðir ekki að það sé leiðinlegt, hræðilegt eða óttalegt, bara erfitt. Ég kom inná þennan punkt í pistli nr.2 sem ég skrifaði, þetta er viðhorf sem ég hef lifað eftir sem að faðir minn kenndi mér á sínum tíma. />

„Ef gengið er út frá því að lífið sé erfitt þá kemur fátt á óvart. Hægt er að gera ráð fyrir því að hrasa, detta og jafnvel verða sleginn niður. Jákvæðni felst í viðbrögðum við slíkum viðburðum en ekki viðburðunum sjálfum. Ef við getum séð upp, þá getum við staðið upp. Jákvæðni felst ekki í afneitun, t.d því að horfast ekki í augu við augljósa skapgerðarbresti eða yfirþyrmandi vandamál, heldur felst jákvæðni í því að sjá leiðir og tækifæri. Jákvæð manneskja segir; Ég veit að þetta er stórt vandamál, en hvað getum við lært? Hverjir eru möguleikarnir? Hugsum um lausnir, hugsum um tækifæri! Jákvæð manneskja hugsar um drauma sína og markmið sín í lífinu til þess að halda sér gangandi, til að finna innblástur og tilgang í heimi þar sem er auðvelt að dragast inn í neikvæða og niðurrífandi hegðun og umræðu. Jákvæðni felst í því að horfast í augu við hlutina eins og þeir eru, finna bestu mögulegu leið út úr ástandinu og fylgja henni síðan eftir“. />

Umfjöllunin í fréttunum hefur ekki beint verið á jákvæðu nótunum, enda alvarlegt ástand í gangi. Við verðum samt að halda áfram að lifa lífinu, herða beltisólina aðeins og einblína á það jákvæða. Ég geri mér grein fyrir að margir hafa misst miklar fjárhæðir og það sé ekki auðvelt að takast á við það. Allt er þó hægt ef viljinn er fyrir hendi! :) />

Ég ætla að enda pistilinn á að hrósa þeim á Skjá 1 fyrir frábært framtak! Þeir eru búnir að birta viðtöl við fullt af fólki sem bendir á jákvæðar hliðar á lífinu undir merkjum þess  að það besta í lífinu sé ókeypis. Ég kom inná þetta í síðasta pistli og vill undirstinga þetta aftur – ÞAÐ BESTA Í LÍFINU ER ÓKEYPIS! :) Þessi vísa verður ekki nógu oft kveðin. Njótið þess að vera með þeim sem standa ykkur næst og horfið fram á við. Leiðin liggur bara uppá við núna! />

>

 Baráttukveðja til ykkar, Kristín Ósk Óskarsdóttir />


» 2 hafa sagt sína skoðun

05.11.2008 13:43:39 / popzy

Alveg bráðum...

Sko ég fer alveg að segja frá einhverju skemmtilegu... :) Er bara ekki búin að vera með andann yfir mér, fer hérna inn og bara nehhhhh! Svo er líka klikkað að gera í íbúðarmálum!!! ;) Pabbi greyið mætir nánast hérna á hverjum degi eftir vinnu til að bardúsa eitthvað... greyið kallinn! Ég hendi inn einum pistli svona til að sýna lit! :haha: Knús og kossar, ykkar Kristín Ósk
P.s já og núna vill ég að ALLIR sem kíkja hingað inn kvitti, takk fyrir takk! ;) Fáið næsta blogg þegar allavega nokkrir hafa kvittað... ha ha ha... Nía mín, þú stendur þig samt mjög vel! Alveg hvetjandi fyrir allan peninginn! hí hí hí! Lov u, Nía pía! ;*


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.10.2008 21:21:22 / popzy

London beibí!!!! ;)

Er sko bara búin að vera blogglöt!!!! :lol: Enda búin að vera lasin eins og þú komst inná Nía mín... bara búin að vera með ógeðis pest! Fékk upp og niður á laugardaginn síðasta, notabene í bústaðaferð með vinkonunum!!! :cry: og var fyrir með ógeðis kvefpest.. Hvernig er hægt að fá 2 pestir í einu??? Anyone??? ha ha...
Nýjasta nýtt í kreppunni er London baby!!!! :haha: ég og pabbi fljúgum út kl. 16 á föstudaginn og komum til landsins aftur á mánudagskvöld. Arsenal leikurinn er svo á laugardeginum 18. okt og vá hvað það verður gaman!!! :) Erum á svona club level (sem betur fer) því inní þeim miða eru fríir drykkir og 3ja rétta máltíð.. Snilld! Þannig að við erum nokkuð vel sett held ég.. ;) Pabbi er eins og litlu börnin á jólunum.. hefur aldrei komið til London og í hvert einasta skipti sem ég kem niðrí Prentsmiðju þá er hann að sýna mér eitthvað nýtt á netinu!! :D Hann fór svo á bókasafnið og tók 3 bækur um London og er búið að velja eina rosa góða gönguleið ha ha ha.. Síðustu fréttir herma svo af veitingastað í Soho sem er indverskur með 2ja rétta máltíð á um 8 pund! Held í alvörunni að ég hafi aldrei verið jafn ánægð með að gefa nokkra gjöf! :haha: Enda á hann þetta fyllilega skilið maðurinn!!!! Hann var síðast í dag að koma með skáphurðarnar í svefnóinu sem hann er búinn að juða eins og vindurinn og mála og mála! Þær eru SJÚKLEGAR!!!  ;) Ég er svo spennt yfir þessu öllu saman og er að vonast eftir því að smiðurinn mæti núna eftir helgi til þess að klára veggina mína og þá get ég loksins haldið áfram að gera heimilið mitt aftur að mínu.. ;)
Annars er ég bara ótrúlega ánægð með lífið eitthvað! Er búin að vera miklu betri af verkjum, dagarnir ekki verkjalausir en verkjaminni og þá er sko hátíð hjá minni!!! :lol:
Að lokum langar mig að enda þetta á að minna ykkur á boðskap auglýsinganna hjá Skjá einum - það besta í lífinu er ókeypis!!!!
Knús og kossar til ykkar! ;* Kristín Ósk out!


» 3 hafa sagt sína skoðun

17.09.2008 23:50:15 / popzy

Er á lífi!!! :)

Nokkrir punktar um mig... :)

  • Byrjaði með námskeiðið Sætar stelpur í Hressó 10. sept - ótrúlega GAMAN!!!! :haha:Er búin að vera á fullu að undirbúa mig fyrir það, þarf alltaf að gera hlutina voða voða vel... stundum gott, stundum vont ha ha ha.. ;) Var með fyrsta tímann í kvöld og þær stóðu sig geðveikt vel!! :D Hélt fyrirlestur í síðustu viku og var með stöðumat.. Er alveg að finna mig!
  • Byrjaði á námskeiði 4. sept sem heitir Sóknarbraut og er á vegum Nýsköpunarmiðstöðvar og Visku. Er mjög tvístígandi um hvort ég eigi að halda áfram eða ekki... :$ Það fjallar um að stofna sitt eigið fyrirtæki og eins og mér einni er lagið, þá þarf ég að byrja að láta ansi marga bolta rúlla í einu. Svo er það aftur þarna kosturinn/ókosturinn að vilja gera allt ALLTOF VEL! Hef ekki beint getað það... Núna eru samt flestir boltarnir komnir af stað og ætti ég því væntanlega að geta komið þessu fyrir á stundaskránni.. Samt búin að vera undir álagi og því smá verkir með því! What to do, what to do???
  • Fékk heila 4 daga í síðustu viku sem voru nánast verkjalausir, eigum við eitthvað að ræða það frekar!!!! :haha:
  • Er flutt aftur heim til MÍN! :) Er með gat í gólfinu á ganginum og brotnar flísar.. Er með brotið parket í stofunni og gat í gólfinu þar líka. Vegna rörs sem lak í sumar... :$ Tvo veggi sem eru með götum líka út frá þessu og bólgnir eftir því... Stuð!! :s
  • Pabbi og ég búin að mála svefnherbergið og gestaherbergið! Gestaherbergið þvílíkt huggulegt og svefnherbergið alveg að verða það! ;)
  • Bottom line... ég er á lífi, lífið voða mikið upp og niður þessa dagana en samt er ég bara ótrúlega sátt við að vera til!!!!! :lol: Látum sitja við þar...
Lag dagsins: Þú komst við hjartað í mér - Hjaltalín! Tileinkað Einari fallega ha ha! ;)
Knús og kossar til ykkar, Kristín Ósk out!


» 6 hafa sagt sína skoðun

23.08.2008 23:43:46 / popzy

Bagglegastur skírður! Montblogg ha ha... ;)

Hellú all my good people! ;)

Þar sem ég er jú orðin tæknisnilli í að setja inn myndir þá ákvað ég að setja inn nokkrar mont myndir... Þann 20. ágúst var Adam Breki Tryggvason skírður. Þennan sama dag áttu líka Tryggvi og Íris 2 ára brúðkaupsafmæli og Hafsteinn (pabbi Írisar) afmæli. Sem sagt mikill merkisdagur!! :d Ég hélt á herra fallegum undir skírn og stóðum við okkur eins og hetjur.. ;) Hann rétt gretti sig yfir kalda vatninu og svaf svo eins og ljós í fanginu á frænku í skírnarkjólnum á meðan við kláruðum athöfnina! Takk fyrir yndislegan dag elsku fjölskylda! Ég elska ykkur alveg uppí topp og takk enn og aftur fyrir heiðurinn! :haha:



Svolítið montin frænka... ;)


Fallegasta fjölskyldan!!! :haha:

P.s Áður en að mágkonan kommentar og skammar mig... ha ha! ;) Þá var ég sem sagt með tvöfalt hlutverk þennan dag (eins og Sigga Inga kom inná)... Ég sem sagt hélt á herra fallegum og var vottur! Tvöfalt hlutverk - tvöfalt mont! :haha: Og kvittaðu nú Íris mín, án þess að skamma mig híhíhí... :)


» 5 hafa sagt sína skoðun

15.08.2008 23:20:31 / popzy

Takk takk takk! ;*

Síðustu dagar hafa verið strembnir.... Lenti aðeins inná spítala, væntanlega blaðra að springa :cry: Ég er náttúrulega ein heima, fyrir utan kattargreyið sem ég er með ofnæmi fyrir by the way.. ha ha ha! Þannig að núna voru góð ráð dýr.. Ég var tiltölulega nýbúin að vera að spjalla við hana Írisi Sigurðar vinkonu mína og endaði á að hringja í hana! Hún skutlaði mér uppá spítala og gerði bara ALLT!!!!! TAKK ENDALAUST MIKIÐ ELSKU VINKONA! :lol:
Fríða Hrönn og Sólin mín buðu mér svo í mat á mánudaginn og var yndislegt að koma til þeirra! Voða gott að fá "mömmumat", enda Fríða Hrönn mín einn sá allri besti kokkur sem ég veit um!! nammi nammi namm :haha:
Fór svo í matarboð í gær þar sem að allar eyjapæju vinkonur mínar voru.. Ég var frekar lítil í mér og þreytt og það er ekki amalegt þegar maður situr nánast í fanginu á fimm vinum sínum, umvafin kærleika og hlýju, það veitir manni styrk og kraft til að halda áfram! ;) takk elskurnar mínar!
Að ógleymdri tvíburanum mínum, stóru eða litlu systur, "mömmu" minni, ofurhetjunni minni... á endalaust af viðurnefnum á hana! Hún er stórkostleg og fjarstýrir mér af mikilli natni í gegnum símann úr borg óttans.. Skil stundum ekki hvernig ég komst í gegnum veikindin áður en ég kynntist henni! Ætla að setja inn eina mynd af mér og skvísunum hennar á góðri stundu! :haha:

Ótrúlega sætar!!!!! :haha:

Að ógleymdum öllum yndislegu vinum mínum sem ég veit að eru ávallt til staðar þótt staddir séu í öðrum heimshlutum og þess háttar...þið vitið hver þið eruð elskurnar mínar!
Já og að lokum hún Ingibjörg mín líka, sem er á "bakvakt" til að ég þurfi ekki að fara með sjúkrabíl ha ha ha... ;)
Hjarta mitt er stútfullt af þakklæti og kærleika! Knús og kossar til ykkar! ;*


» 3 hafa sagt sína skoðun

08.08.2008 12:20:09 / popzy

Hugsaðu jákvætt, það er léttara

Hugsaðu jákvætt, það er léttara />

Kæru lesendur, ég vona innilega að Þjóðhátíðin hafi farið vel fram hjá ykkur öllum og þið skemmt ykkur jafn vel og ég gerði! :) Fyrsta geðorðið fjallar um að hugsa jákvætt og er við hæfi að tengja það við helgina sem nú er á enda. Ég hef alltaf sagt að veðrið í Dalnum sé hugarástand. Ég hef það fyrir reglu að mæta með sól í hjarta í Dalinn og einhvern veginn þá er alltaf gott veður hjá mér, sama hvernig viðrar. Það er nefnilega svo að það er miklu auðveldara að hugsa jákvætt, samt er þetta ákveðin tækni sem maður þarf að tileinka sér. />

Fyrsta geðorðið snýst um hugarfar. “Samband milli hugsanna og tilfinninga er mjög sterkt. Ef við hugsum um eitthvað sorglegt verðum við sorgmædd og á sama hátt verðum við glöð þegar við hugsum um eitthvað ánægjulegt. Einfaldasta leiðin til að breyta því hvernig okkur líður hverju sinni getur verið að hugsa um eitthvað annað en það sem við vorum að hugsa” (Úr bókinni Velgengni og vellíðan, um geðorðin 10). Þetta er samt ekki alltaf svona einfalt og verðum við óneitanlega að taka það með í reikninginn að stundum þurfum við að leyfa okkur að finna til. Til dæmis er við missum náin vin eða aðstandanda, þá er eðlilegt að vera sorgmæddur og mikilvægt að fara í gegnum það ferli tilfinningalega séð. />

Það sem er einna mikilvægast, eins og ég hef komið inná nokkrum sinnum áður, er að vera meðvitaður um tilfinningar sínar. “Ef við erum vakandi fyrir því að við getum haft áhrif á líðan okkar með hugarfarinu öðlumst við ákveðið frelsi og það kemur í veg fyrir að við verðum fórnarlömb tilfinninga okkar”. Það er mjög slæmt fyrir okkur að festa okkur í fórnarlambs hugsuninni, hún getur haft svo slæm áhrif á líðanina hjá okkur. />

Jákvæð hugsun snýst ekki bara um að vera í góðu skapi. “Sálfræðingurinn Barbara Fredrickson hefur með rannsóknum sínum sýnt að þegar tilfinningar okkar eru jákvæðar erum við meira skapandi. Einnig hefur verið sýnt fram á að fólk sem finnur fyrir og greinir oft frá jákvæðum tilfinningum sé líklegra til að vera ánægt með lífið og eiga innihaldsríkari sambönd við aðra. Það er einnig afkastameira og ánægðara í vinnu, hjálpsamara við aðra og líklegra til að ná settum markmiðum í lífinu” (Úr bókinni Velgengni og vellíðan, um geðorðin 10). Mér fannst alveg magnað að lesa um þessa rannsókn. Ég er reglulega spurð hvort að ég sé alltaf svona jákvæð eins og ég legg upp með að skrifa um í pistlunum mínum??? Svarið er að mestu leyti já. Ég er búin að vinna svo mikið með þennan þátt í mínu lífi, jákvæðu hugsunina og hefur hún komið mér þangað sem ég er í dag. />

“Þetta fyrsta geðorð felur í sér að jákvæð sýn á lífið er undirstaða vellíðunar þegar á heildina er litið. Jákvætt viðhorf í eigin garð er lykillinn að góðri sjálfsmynd og sjálfsviðurkenningu. Með jákvæðri sýn á lífið reynist auðveldara að takast á við vandamál á uppbyggilegan hátt” (Úr bókinni Velgengni og vellíðan, um geðorðin 10). Ég er frjáls af því að finna til og minn sársauki felst kannski mest í verkjum og stundum örlitlu vonleysi samfara þeim. Málið er að ég kann orðið að tækla þetta og eins og segi alltaf; Á morgun kemur nýr dagur, með nýjum loforðum og það fleytir mér ansi langt get ég sagt ykkur. Munið því að hugsa jákvætt, það er svo miklu léttara! :) Jafnframt, þá getið þið alltaf fundið eitthvað pínulítið jákvætt á hverjum einasta degi. Smá bros, skítugur koss frá barni, fallegur dagur þar sem eyjan skartar sínu fegursta - það er ALLTAF hægt að finna eitthvað. />

Með þessum orðum kveð ég að sinni. />

kær kveðja, ykkar Kristín Ósk

» 1 hafa sagt sína skoðun

08.08.2008 12:16:57 / popzy

Heilbrigð sál í hraustum líkama

Heilbrigð sál í hraustum líkama />

Komið þið sæl kæru lesendur! Hugurinn minn hefur hvarflað mikið að skrifum uppá síðkastið og fékk ég nokkrar hugmyndir að pistlum á meðan á dvöl minni stóð á Reykjarlundi. Einn af mínum uppáhaldsstöðum í Reykjavík er búðin Betra líf, sem er staðsett á 3. hæð Kringlunnar. Þar finn ég ALLTAF eitthvað sem höfðar til mín í það og það skiptið. Ég rambaði til dæmis á bók sem heitir Lögmál kærleikans og hlakka ég til að skrifa út frá henni. Þar sem ég er óttarlegur bókaormur, þá fór ég líka í bóksölu stúdenta og fann þar bók sem var skrifuð í kringum geðorðin 10, sem flestir kannast ef til vill við. Ég fékk segul sendan um árið með geðorðunum og hangir hann ennþá á ísskápnum og heldur stundaskránni hjá Hressó uppi fyrir mig. Þetta allt leiddi mig til þess að mig langar að skrifa meira um heilbrigði. Ég rækta hugann og andann með því að lesa uppbyggilegar bækur og vinna markvisst með tilfinningarnar mínar. Svo hreyfi ég mig mikið, þar sem það lætur mér einfaldlega líða betur! :) />

Heilbrigð sál í hraustum líkama, skilar okkur vellíðan og velgengni í lífinu. Geðheilsa er stór þáttur í því og hefur verið greind í eftirfarandi þætti samkvæmt bókinni Velgengni og vellíðan um geðorðin 10 eftir Dóru Guðrúnu Guðmundsdóttur: />

  • Sjálfsviðurkenning />
  • Persónulegur þroski />
  • Jákvæð samskipti við aðra />
  • Sjálfsstjórn />
  • Tilgangur í lífinu />
  • Stjórn á umhverfi sínu />

Þetta eru mikilvægir þættir fyrir hvern og einn til að miða sjálfan sig svolítið út frá þegar farið er í naflaskoðun. Mig langar til að telja einnig upp geðorðin 10 fyrir þá sem eru þeim ekki kunnugir og ætla ég að skrifa meira um hvert og eitt þeirra á næstunni. Geðorðin 10 eru: />

    1. Hugsaðu jákvætt, það er léttara />
    2. Hlúðu að því sem þér þykir vænt um />
    3. Haltu áfram að læra svo lengi sem þú lifir />
    4. Lærðu af mistökum þínum />
    5. Hreyfðu þig daglega, það léttir lundina />
    6. Flæktu ekki líf þitt að óþörfu />
    7. Reyndu að skilja og hvetja aðra í kringum þig />
    8. Gefstu ekki upp, velgengni í lífinu er langhlaup />
    9. Finndu og ræktaðu hæfileika þína />
    10. Settu þér markmið og láttu drauma þína rætast />

Ef við tökum fyrir geðorð 5 í dag - Hreyfðu þig daglega, það léttir lundina. />

Ég er búin að vera í mikilli hreyfingu síðustu sex vikur og hefur það óneitanlega hjálpað mér að halda dampi í gegnum verkina sem fylgdu samfara allri þessari hreyfingu. Jú stundum varð ég að slá af, þar sem ég hef lært að við þurfum að hlusta á líkamann og hann lætur okkur vita ef við erum að gera of mikið. Ég held líka að það sé eitt af því mikilvægasta í lífinu, ef við miðum það út frá hugtakinu; Heilbrigð sál í hraustum líkama, að hlusta á það sem hann er að segja okkur. “Flestir kannast við þá vellíðan sem fylgir því að taka á líkamlega. Í kjölfar slíkra átaka flæða hormón um líkamann sem veita okkur eftirsóknaverða og heilbrigða vellíðan. Reglulegri hreyfingu fylgja jákvæðar tilfinningar, bætt líðan, minni streita, sterkari sjálfsmynd og hún getur komið í veg fyrir geðheilsuvandamál. Möguleikarnir til að hreyfa sig reglulega eru margir. Sumum hentar vel að fara í líkamsræktarstöðvar, öðrum að fara út að ganga, í sund, á hestbak, í jóga eða hvað sem er. Það sem verður fyrir valinu er aukaatriði. Aðalatriðið er að finna hentuga hreyfingu og byrja sem fyrst því regluleg hreyfing virðist vera nauðsynleg fyrir heilsuna og geðheilsuna frá vöggu til grafar” (Úr bókinni Velgengni og vellíðan, um geðorðin 10). />

Þetta náttúrulega endorfín hefur hjálpað mér mikið og hvatt mig til að halda áfram. Ég hef nýtt mér einkaþjálfun hjá hinni einstöku Hafdísi Kristjánsdóttur og langar mig að nota tækifærið og þakka henni fyrir að meta nákvæmlega hvað það er sem ég þarf hvern dag. Þar sem ég kem oft í misjöfnu ástandi í hreyfinguna, þá er ómetanlegt að hafa einhvern sem kippir manni niðrá jörðina og lætur mann gera sitt besta það skiptið! :) Eftirá upplifi ég mig alltaf sem sigurvegara og það er frábær tilfinning. Göngur hérna um Eyjuna fögru gefa mér líka alltaf jafn mikið. Þessi einstaka náttúruperla er fjársjóður og eru það forréttindi að geta hreyft sig í svona fallegu umhverfi. Ég hvet ykkur því eindregið að fara að huga að því sem vekur áhuga ykkar, heilsan ykkar, líkamleg sem andleg mun njóta góðs af! />

Að lokum langar mig til að óska ykkur gleðiríkrar þjóðhátíðar, munið að ganga hægt um gleðinnar dyr. />

Kær kveðja ykkar Kristín Ósk />


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7
Heimsóknir
Í dag:  9  Alls: 45620
Leitarbox