Mín skoðun á hlutunum...
15.08.2008 23:20:31 / popzy

Takk takk takk! ;*

Síðustu dagar hafa verið strembnir.... Lenti aðeins inná spítala, væntanlega blaðra að springa :cry: Ég er náttúrulega ein heima, fyrir utan kattargreyið sem ég er með ofnæmi fyrir by the way.. ha ha ha! Þannig að núna voru góð ráð dýr.. Ég var tiltölulega nýbúin að vera að spjalla við hana Írisi Sigurðar vinkonu mína og endaði á að hringja í hana! Hún skutlaði mér uppá spítala og gerði bara ALLT!!!!! TAKK ENDALAUST MIKIÐ ELSKU VINKONA! :lol:
Fríða Hrönn og Sólin mín buðu mér svo í mat á mánudaginn og var yndislegt að koma til þeirra! Voða gott að fá "mömmumat", enda Fríða Hrönn mín einn sá allri besti kokkur sem ég veit um!! nammi nammi namm :haha:
Fór svo í matarboð í gær þar sem að allar eyjapæju vinkonur mínar voru.. Ég var frekar lítil í mér og þreytt og það er ekki amalegt þegar maður situr nánast í fanginu á fimm vinum sínum, umvafin kærleika og hlýju, það veitir manni styrk og kraft til að halda áfram! ;) takk elskurnar mínar!
Að ógleymdri tvíburanum mínum, stóru eða litlu systur, "mömmu" minni, ofurhetjunni minni... á endalaust af viðurnefnum á hana! Hún er stórkostleg og fjarstýrir mér af mikilli natni í gegnum símann úr borg óttans.. Skil stundum ekki hvernig ég komst í gegnum veikindin áður en ég kynntist henni! Ætla að setja inn eina mynd af mér og skvísunum hennar á góðri stundu! :haha:

Ótrúlega sætar!!!!! :haha:

Að ógleymdum öllum yndislegu vinum mínum sem ég veit að eru ávallt til staðar þótt staddir séu í öðrum heimshlutum og þess háttar...þið vitið hver þið eruð elskurnar mínar!
Já og að lokum hún Ingibjörg mín líka, sem er á "bakvakt" til að ég þurfi ekki að fara með sjúkrabíl ha ha ha... ;)
Hjarta mitt er stútfullt af þakklæti og kærleika! Knús og kossar til ykkar! ;*

Kristín Stóra systir þín og mamma ;O) skrifaði
Æ elsku stelpan mín, Takk fyrir virkilega falleg orð í minn garð og f að deila fallegustu dætrum íslands með þér á mynd ;O)
Þú gefur frá þér svo mikinn kærleik og vinnur hug allra sem eru svo heppnir að komast í tæri við að kynnast þér! Og að sama skapi hefur þú komið mér í gegnum mjög erfiða tíma og þakka ég daglega fyrir að þú komst inn í líf mitt og það á hárréttu augnabliki!
Ég verð ávallt til staðar fyrir þig þó oft sé það aðeins í gegnum símann, en sem betur fer ertu vel upp alin (af mér að sjálfsögðu, híhí;O) og hlýðin eftir því þannig að ég á gott með að stýra þér í gegnum símann; )
Haltu áfram að vera svona dugleg og sterk!
þúsund knús og kossar til þín : *
Fríða Hrönn skrifaði
Knús til þín Kristín mín* Þú ert bara dugleg*** Takk fyrir að borða góða matinn minn;) Og by the way þá spyr Sólin daglega- hvar er alvör Kristín núna??? :) Mér finnst þetta algjör snild! Alvöru Kristín! Það er nú varla til flottara en að vera ALVÖRU! :)
Einar fallegi skrifaði
Jaeja nu er ég alveg ad fara ad koma heim til Islands og mikid djofull verdur tad gott. Buinn ad sakna tin og tad verdur gott ad hitta tig og spjalla.
Verd i bandi tegar eg verd kominn heim.

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Heimsóknir
Í dag:  14  Alls: 29640
Leitarbox