Mín skoðun á hlutunum...
23.08.2008 23:43:46 / popzy

Bagglegastur skírður! Montblogg ha ha... ;)

Hellú all my good people! ;)

Þar sem ég er jú orðin tæknisnilli í að setja inn myndir þá ákvað ég að setja inn nokkrar mont myndir... Þann 20. ágúst var Adam Breki Tryggvason skírður. Þennan sama dag áttu líka Tryggvi og Íris 2 ára brúðkaupsafmæli og Hafsteinn (pabbi Írisar) afmæli. Sem sagt mikill merkisdagur!! :d Ég hélt á herra fallegum undir skírn og stóðum við okkur eins og hetjur.. ;) Hann rétt gretti sig yfir kalda vatninu og svaf svo eins og ljós í fanginu á frænku í skírnarkjólnum á meðan við kláruðum athöfnina! Takk fyrir yndislegan dag elsku fjölskylda! Ég elska ykkur alveg uppí topp og takk enn og aftur fyrir heiðurinn! :haha:



Svolítið montin frænka... ;)


Fallegasta fjölskyldan!!! :haha:

P.s Áður en að mágkonan kommentar og skammar mig... ha ha! ;) Þá var ég sem sagt með tvöfalt hlutverk þennan dag (eins og Sigga Inga kom inná)... Ég sem sagt hélt á herra fallegum og var vottur! Tvöfalt hlutverk - tvöfalt mont! :haha: Og kvittaðu nú Íris mín, án þess að skamma mig híhíhí... :)

Sid skrifaði
Hæ sæta
Mikið rosalega tekur þú þig vel út með barn á handleggnum ;-)
Ég vildi annars bara kvitta (laaaaangt síðan ég hef gert það;) og segja að þú ert einhver yndislegasta manneskja sem ég þekki (var að lesa bréfið þitt á bloggi vinkonu okkar :-). Ef allir hugsuðu eins og þú, væri heimurinn miklu betri!
Þú ert gull af manni (konu :Þ;) og þrátt fyrir að hafa bara þekkt þig í stuttan tíma þá hafið þið nafna þín fengið mig til að breyta hugsanahætti mínum til hins betra.
Hef skrifað þetta áður til þín á bloggið þitt en aldrei verður góð vísa of oft kveðin;
Takk fyrir að vera þú og takk fyrir að vera til :*
Knús og kossar frá Djöflaeyjunni,
Sid Down-under
Sid again skrifaði
Ohh vissi ekki að þessir blikk kallar myndu koma (gerði nefnilega mína eigin hehe). Getur þú sem admin ekki fixað þetta :Þ
Sigga Inga skrifaði
Hæhæ fallega;)
Æðislega tekuru þig vel út hér á myndunum;) algjört beib;)heh
Og til hamingju með titilinn "guðmóðir";*
Sorry að ég hef ekki kvittað lengi en ætla að taka mig á;)
Sendi þér góða strauma og fullt af knúsum og kærleik frá Dk
Sigga;*;*
Kristín Ósk skrifaði
Sid... Admin... what??? ha ha ha... En takk annars æðislega fyrir fallegu orðin! Hlakka ógurlega til djammsins ógurlega (þegar við tökum völdin tónlistarlega séð og gerum allt crazy hjá overbo) og takk líka sjálf fyrir að vera til! Knús og kossar til þín! ;* Sigga Inga mín, takk fyrir kvittið! Já stelpur mínar, verð að fara að fá mér svona barn á arminn ha ha ha... ;) Knús til DK ;*
Kristín skrifaði
hæhæ fallegi engilinn minn: * Mikið svaklega tekurðu þig vel út með litla frænda í fanginu! Fer þér súpervel að vera með svona kríli í fanginu;O)
Við skulum sko hafa það á hreinu að ef ég næ bata núna mun ég halda partý aldarinnar en þetta með yfirvöld á tónlistinni þarf ég að hugsa um;O) spurning að fá þá bara Palla í partýið til að sjá um tónlistina, hahaha;O)
þúsund knús og kossar á þig sætasta sætust: *

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Heimsóknir
Í dag:  6  Alls: 29673
Leitarbox