Mín skoðun á hlutunum...
14.11.2008 04:43:04 / Margrét
Legslímuflakk
Sæl Kristín Ósk
Takk fyrir að skrifa söguna þína um legslímuflakkið - það er ótrúlega gott að geta lesið sig til um þennan sjúkdóm af reynslusögum. En mig langar að fá að senda þér póst, værir þú til í að senda mér netfangið þitt. Ég greindist með legslímuflakk nú í sumar.
Bestu kveðjur
Margrét
29.08.2008 09:19:17 / Dóra
Dóra
Hæ skvís þú mátt alveg vera montin elsku frænka með littla frænda.
Kv Dóra
29.05.2008 08:43:05 / Selma
Selma
Var að koma frá lækninum og fékk þær upplýsingar að ég væri með legslímuflakk, er að renna í gegnum netið til að leita mér upplýsinga, áhugavert að lesa þína sögu, greina góðar upplýsingar, takk fyrir mig og gangi þér vel
Kveðja Selma
hæjj:D
hææ Kristín töff síða og allt þú ert best í heimi það er geðveikt gaman að hafa þig sem kennara hehehehehehehehehe og þú ert algjör snillingur sem ég hef nokkurn tíman kynnst á ævini endilega haltu áfram að vera svona æðisleg kíktu á mína síðu og kvitta í gestó Kveðja Dagmar vinkona
22.11.2007 01:21:47 / Guðný
Engill
Elsku vinkona, ekki veit ég hvernig lífið væri án þín....? það væri allavega ekki eins skemmtilegt, fróðlegt,kærleiksríkt og innihaldslýsingin á því væri stutt (er öll í innihaldslýsingum þessa dagana,reyni að hafa allt hollt án eiturefna) Þú kemur alltaf með það sem maður þarf að heyra, ert svona engill sem detttur svo skemmtilega inn í lífið manns svona surprise, já svona óvænt veisla:) Það ert einmitt þú. Vildi bara koma þessu á framfæri til þín kjarkaða, sterka gullfallega kona, ég er ótrúlega heppin að hafa þig í lífi mínu. Takk fyrir þig:) Þín vinkona Guðný
29.09.2007 12:21:47 / Begga frænka
Love ú
Elsku frænka, ég var að lesa söguna þína og það sem þú hefur gengið í gegnum. Ég sendi baráttu kveðjur til þín og hef þig á bænum mínum á hverjum degi. Svo verðum við að fara að heyrast og hittast. Mér þykir óendanlega vænt um þig.
29.07.2007 12:36:48 / Lísibet / lisibet.bloggar.is
hæhæ
ekki hafði ég hugmynd um það að þú værir orðin bloggari:) Sendi hér kveðju verðum svo að fara að vera í bandi...
12.07.2007 10:55:39 / Solla / www.sollab.bloggar.is
Kveðja
Allt gott að frétta, nema hún gamla okkar "vantar svo pennatösku". Hröð niðurleið þar. Ég verð í sumarfríi frá 7. ágúst - 26 ágúst en þú kannski kemur við hjá mér í Klapparhlíðina ;) Hafðu það gott þangað til og vonandi fer þetta að lagast hjá þér dúllan mín.
11.07.2007 01:09:32 / Sólborg / www.sollab.bloggar.is
Jiiiii minn
Maður er nú bara næstum sármóðgaður, bara búin að vera með blogg LENGI og maður veit ekki neitt!!!!! ISS ;) Fylgjist vel með þér núna! Bið að heilsa þér sæta.
28.06.2007 11:38:15 / Vallý Ragnarsdóttir / ragnargauti.barnaland.is
Sæl Kristín
Hæ hæ Kristín! Rakst inn á bloggið þitt fyrir einhverja tilviljun. Las hjá þér söguna þína um legslímuflakk. Þú ert bara hetja það verð ég að segja, ég hef kynnst þessum sjúkdómi í gegnum vinkonu mína sem er með hann líka (auk þekkingar úr mínu námi og starfi) og þetta er ótrúlega erfitt. Gangi þér vel og vonandi áttu BARA góða tíma framundan. Kveðja Vallý
23.06.2007 01:15:15 / Íris
Halló :)
Hæ sæta mín :) Þýðir ekkert að tilkynna nýtt hotmail og ekki gefa það svo ég geti nú addað þér inn :) En ég er með það sama þannig að þú getur náttlega alltaf addað mér bara.. pysja@hotmail.com :)
19.06.2007 08:50:01 / Kjartan Vídó
elsku vinkona
byrjaði að koma á síðu þín í gegnum Bogga bónda og lesa söguna þína með trúflofunarhringina hló mikið. Hló svo ekkert þegar ég las veikindasöguna þína, vona að þetta fari að taka enda hjá þér. Farðu vel með þig. kv Vídólingurinn
04.12.2006 10:51:05 / Ólöf Ananíasdóttir
Kristín Ó
Blessuð elskan mergjað að rekast á bloggið þinn inná þvælingnum sem é er inná, vona að þér fari nú að líða vel og fá bata. Kveðja Ólöf An unnum saman í Lönguhlíðinni Skálatúni \"esskann\"
24.04.2006 02:15:25 / Ásta / www.blog.central.is/salny3
hæ beib
hæ gella frábært að geta komið hingað inn til þín, mér finnst alveg ómissandi að fara smá blogghring sem oftast og ath hvað er að gerast á þessari jörð,,ekki að maður noti síman eins mikið og í gamla daga:) Endilega vertu dugleg að skrifa,, i lov it!!! bestu kveðjur Ásta Pásta
22.04.2006 07:09:19 / Einar fallegir / http://fallegaztur.blogspot.com
Glæsibær
Já Þetta er allt að gerast hjá þér. Ég verð hér á síðunni í tíð og tíma. Gangi þér vel. Einar fallegi

Skrifa í gestabókina

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Heimsóknir
Í dag:  6  Alls: 29673
Leitarbox